Hildur Sverrisdóttir
Hildur er alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suðurs og þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Hún er fædd 1978 og er lögfræðingur að mennt. Hún hefur setið á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem varaþingmaður og þingmaður til skiptis síðan árið 2016. Þar áður var Hildur varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík frá 2010-2016 og borgarfulltrúi frá 2016-2017. Þá starfaði hún sem aðstoðarmaður ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 2018–2021.